Golf

Fimm fugla dagur kom Ólafíu í góðu stöðu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía á góða möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía á góða möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á tveimur höggum undir pari á öðrum keppnisdegi Manulife LPGA Classic í Ontaríó í Kanada. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni í golfi.

Ólafía var á einu höggi yfir pari eftir fyrsta keppnisdaginn þar sem hún byrjaði illa en náði sér svo vel á strik.

Ólafía lék einkar vel í dag og fékk alls fimm fugla á hringnum og aðeins þrjá skolla.

Hún var á einu höggi undir pari eftir fyrri níu holunum og lék sama leik á seinni níu.

Þegar Ólafía lauk leik var hún réttu megin við niðurskurðarlínuna en þarf að bíða og fylgjast spilamennska annarra kylfinga í dag til að vita hvort hún kemst áfram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×