Formúla 1

Lewis Hamilton og Kimi Raikkonen fljótastir á föstudegi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var fljótastur á fyrri æfingunni.
Lewis Hamilton var fljótastur á fyrri æfingunni. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á seinni æfingunni.

Fyrri æfingin

Hamilton setti brautartíma upp á 1:13.809 á últra-mjúkum dekkjum á æfingunni. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar fljótastur á æfingunni 0.198 sekúndum á eftir Hamilton.

Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji og Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði. Allir fjórir voru þeir á sömu hálfu sekúndunni.

Ökumenn þurftu að glíma talsvert við bíla sína í upphafi enda brautin afar rykug. Raikkonen og Vettel ásamt Nico Hulkenberg snérust á æfingunni.

Fernando Alonso var seinn af stað að setja tíma. Hann lenti svo í því að bíll hans bilaði. Glussaþrýstingur í bíl Spánverjans féll.

Kimi Raikkonen var fljótastur á seinni æfingunni.Vísir/Getty
Seinni æfingin

Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á annarri æfingunni. Hamilton varð annar þar og Vettel þriðji meðan Bottas var fjórði. Max Verstappen á Red Bull varð fimmti. Þeir voru allir á sömu hálfu sekúndunni.

Menn voru mikið að snúa bílum sínum um alla braut. Það var eins og brautin væri ísilögð í fyrstu beygjunni þar sem næstum allir snéru öfugt á einhverjum tímapunkti.

Bein útsending frá kanadíska kappakstrinum hefst klukkan 17:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport 2. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 16:50 á morgun á Stöð 2 Sport 4.

Hér að neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Pascal Wehrlein er heill heilsu og má keppa

Sauber ökumaðurinn, Pascal Wehrlein lenti í árekstri við Jenson Button í Mónakó og endaði á hlið upp við varnarvegg. Hann hefur nú verið skoðaður af læknum og má aka í Kanada næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×