Erlent

Trump segist tilbúinn að ræða samskipti sín við Comey eiðsvarinn

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist tilbúinn að bera vitni eiðsvarinn um samskipti sín við James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar, FBI.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist tilbúinn að bera vitni eiðsvarinn um samskipti sín við James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. Vísir/Getty
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist tilbúinn að bera vitni eiðsvarinn um samskipti sín við James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar, FBI.

Trump tjáði sig um vitnisburð Comey í Hvíta húsinu í dag og hafnaði því að hafa krafist hollustu Comey. Þá hafnaði hann einnig að hafa krafist þess að rannsókn á fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa sínum, Michael Flynn, yrði hætt.

„James Comey staðfesti margt sem ég hef áður sagt og sumt sem hann sagði voru einfaldlega ekki sannir,“ sagði Trump.

Comey bar vitni eiðsvarinn við þingnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í gær. Með orðum sínum er Trump að saka Comey um lögbrot en ólöglegt er að ljúga undir eið.

Í vitnisburði Comey í gær kom meðal annars fram að hann sá sig knúinn til þess að rita minnisblöð eftir fundi hans með Trump. Taldi hann að mikilvægt væri fyrir sig að geta gripið til þeirra síðar meir þar sem hann taldi líklegt að Trump myndi reyna að ljúga til um efni fundanna.


Tengdar fréttir

Lögmaður Trump rengir orð Comey

Bandaríkjaforseti krafði James Comey, þáverandi forstjóra FBI, ekki um hollustu þvert á það sem sá síðarnefndi segir, samkvæmt yfirlýsingu lögmanns Donalds Trump. Þá segir hann Trump aldrei hafa beðið Comey um að hætta rannsókn á tengslum samstarfsmanna forsetans við Rússa.

Trump mun kvarta formlega yfir minnisblaðaleka Comey

Lögfræðingur Donald Trump mun leggja fram formlega kvörtun til dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem og dómsmálanefndar Bandaríkjaþings, vegna þess að James Comey, fyrrverandi forstjóri FBI, lét leka minnisblöðum um fundi hans og Trump til fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×