Innlent

Sigur stjórnarandstöðunnar: „Stjórnin er ekki að þvinga neitt í gegn“

Snærós Sindradóttir skrifar
Stjórnarandstaðan segir mál ríkisstjórnarinnar hafa komið seint og illa fram.
Stjórnarandstaðan segir mál ríkisstjórnarinnar hafa komið seint og illa fram. vísir/ernir
Afar fátt sem ágreiningur ríkir um á milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar kemst í gegnum Alþingi. Þingi verður frestað á morgun, miðvikudag, en það er helst ríkisfjármálaáætlun sem fer í gegnum þingið og einhver ágreiningur ríkir um. 

Um önnur mál á borð við áfengisfrumvarpið, rammaáætlun, rafrettufrumvarpið og frumvarp um fjölda borgarfulltrúa, ríkir ágreiningur og verða þau látin bíða betri tíma. Fríverslunarsamningur við Filippseyjar, sem mikill ágreiningur ríkir um, verður sömuleiðis settur á ís. 

Veikur eins manns meirihluti stjórnarflokkanna kemur í veg fyrir að ríkisstjórnin geti keyrt mál í gegnum þingið eins og löngum hefur tíðkast. Í stað þess hafa þingmenn þurft að setjast niður og stjórnarflokkarnir þurft að sætta sig við verulegar málamiðlunartillögur stjórnarandstöðu.Ekki ríkir ágreiningur um jafnlaunavottun eftir að frumvarpið tók einhverjum breytingum svo það flýgur í gegnum þingið. 

„Stjórnin er ekki að þvinga neitt í gegn. Þau geta það ekki,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, starfandi þingflokksformaður Framsóknar. 

Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá mun áfengisfrumvarpið ekki komast í gegn. 

Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnarflokkarnir hafi ekki lagt neina áherslu á það í samningaviðræðum við stjórnarandstöðu. „Það fór út af borðinu strax. Það var útséð um að þar væri einhver sátt,“ segir Silja.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir forseta Alþingis hafa lagt mikla áherslu á að klára þing á réttum tíma í stað þess að bæta við þingfundardögum. „Þá er skammur tími til stefnu. Það eru mörg stór mál sem bíða og um það voru formenn allra flokka sammála á laugardag.“ 

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir stjórn og stjórnarandstöðu vera að læra hvor á aðra. Stjórnarflokkarnir hafi ekki getað keyrt hluti áfram með sama hætti og áður. „Það er annaðhvort meirihluti fyrir málum eða ekki. Ef það er meirihluti, þá breytir í sjálfu sér ekki hvort það er eins manns meirihluti eða ekki, en auðvitað er skynsemi fólgin í því að leita samkomulags um það sem mögulegt er. En þar sem er ágreiningur verður bara afl atkvæða að skera úr.“ 


Tengdar fréttir

Áfengisfrumvarp næst ekki í gegnum þingið

Mörg mál bíða afgreiðslu Alþingis þegar einungis tvær vikur eru eftir fram að sumarfríi. Samningaviðræður á milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu um hvað fer í gegn eru ekki hafnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×