Innlent

Flugfarþegar töfðust um rúmar tvær klukkustundir á Akureyri

Gissur Sigurðsson skrifar
Nafni Flugfélags Íslands var nýverið breytt í Air Iceland Connect.
Nafni Flugfélags Íslands var nýverið breytt í Air Iceland Connect. Mynd/Aðsend
Farþegar sem ætluðu að fljúga frá Akureyri til Reykjavíkur í gærkvöldi með flugvél Air Iceland Connect, töfðust í að minnsta kosti tvær klukkustundir eftir að farangursvagni var ekið utan í vélina á flugvellinum og valdið einhverjum skemmdum.

Ekki þótti ráðlegt að fljúga vélinni suður nema hún yrði skoðuð vel áður, svo vél var send frá Reykjavík með flugvirkja til verksins og flutti hún svo farþegana til Reykjavíkur.

Fréttastofunni er ekki kunnugt um hvort skemmdirnar eru alvarlegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×