Sport

Íslensku keppendurnir rökuðu inn verðlaunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hrafnhildur og Eygló Ósk fengu báðar gull í dag.
Hrafnhildur og Eygló Ósk fengu báðar gull í dag. vísir/anton
Smáþjóðaleikarnir fóru á fulla ferð í San Marinó í dag og okkar fólk var fljótt að láta til sín taka.

Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir braut ísinn með því að vinna fyrsta gullið í 200 metra baksundi. Hún vann með miklum yfirburðum þó svo hún hefði verið langt frá Íslandsmets tíma sínum.

Bryndís Rún Hansen tók svo gullið í 100 metra skriðsundi sem var æsispennandi. Þriðja gullið í lauginni kom svo þegar Hranfhildur Lúthersdóttir hreppti gullið í 200 metra fjórsundi.

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson fékk bronsverðlaun í 200 metra bringusundi og Viktor Máni Vilbergsson fékk líka brons í 200 metra fjórsundi.

Bryndís Bolladóttir hlaut bronsverðlaun í 200 metra flugsundi og Þröstur Bjarnason hlaut einnig bronsverðlaun í 200 metra flugsundi.

Ásdís Hjálmsdóttir pakkaði spjótkastkeppninni saman en hún kastað 60,03 metra. Næsti keppandi kastaði rúma 49 metra.

Þorsteinn Ingvarsson vann langstökkskeppnina með stökki upp á 7,42 metra. Hulda Þorsteinsdóttir fékk svo gull í stangarstökkinu þar sem hún stökk 4,20 metra.

Óðinn Björn Þorsteinsson kastaði 17,59 metra í kúluvarpinu og það dugði til bronsverðlauna.

Ari Bragi Kárason fékk brons í 100 metra hlaupi er hann kom í mark á 10,81 sekúndu. Kolbeinn Höður Gunnarsson átti næstbesta tímann í undanrásunum en var dæmdur úr leik í úrslitunum.

Óskar Ómarsson varð í sjötta sæti af 28 keppendum í götuhjólreiðum karla. Erla Sigurlaug Sigurðardóttir vann aftur á móti til silfurverðlauna í kvennaflokki.

Blaklandsliðin töpuðu bæði leikjum sínum í dag gegn Kýpur. Báðir leikir fóru 3-1 fyrir Kýpur.

Kvennalandsliðið í strandblaki tapaði 2-1 fyrir San Marínó i hörkuleik. Heiða Gunnarsdóttir og Matthildur Einarsdóttir keppa fyrir hönd Íslands en þær eru aðeins 17 og 15 ára gamlar.

Valgeir Valgeirsson og Benedikt Valtýsson skipa karlalandsliðið og þeir töpuðu 2-0 gegn Liechtenstein.

Allir íslensku tenniskeppendurnir töpuðu sínum leikjum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×