Bíó og sjónvarp

Vinna að framhaldi Mamma Mia

Samúel Karl Ólason skrifar
Kvikmyndafyrirtækið Universal hefur hafið vinnu við framhald hinnar vinsælu söngvamyndar Mamma Mia sem kom út árið 2008. Ol Parker sem er hvað þekktastur fyrir The Best Exotic Marigold Hotel, mun skrifa handrit myndarinnar og leikstýra henni. Kvikmyndin mun heita Mamma Mia: Here We Go Again og á að frumsýna hana þann 20. júlí á næsta ári.

Framleiðslufyrirtækið Playtone Pictures, sem sá um framleiðslu fyrri myndarinnar, mun einnig halda utan um framleiðslu þeirrar næstu, samkvæmt frétt Variety.

Myndin mun innihalda ABBA lög sem voru ekki í þeirri fyrri sem og nokkur af vinsælustu lögunum úr henni.

Universal hefur lengi haft framhaldsmynd í huga og hefur ýmsum hugmyndum verið varpað fram á þeim tíma. Meðal annars kom til greina að einblína á forsögu persóna Meryl Streep, Colin Firth og Pierce Brosnan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×