Viðskipti erlent

Trump og Sádar gera gríðarstóra samninga

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Salman bin Abdulaziz al-Saud, konungur Sádi-Arabíu.
Donald Trump og Salman bin Abdulaziz al-Saud, konungur Sádi-Arabíu. Vísir/AFP
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag taka þátt í athöfn í Sádi-Arabíu þar sem skrifað var undir fjölda samninga á milli ríkjanna og fyrirtækja. Margir af samningunum snúa að ætlun yfirvalda Sádi-Arabíu að draga úr því hvað ríkið er háð olíu og auka framleiðslu heima við. Um er að ræða gríðarstóra samninga og mjög háar upphæðir.

Reuters fréttaveitan segir þó að sumir samningar hafi áður verið tilkynntir og að aðrir þarfnist frekari viðræðna. Því sé athöfnin að hluta til sýnimennska.

Samkvæmt AP fréttaveitunni segja starfsmenn Hvíta hússins að sölusamningar varðandi hergögn verði samtals 450 milljarða dala virði á næstu tíu árum. Það samsvarar um 45.000.000.000.000 krónum (45 billjónir eða 45 þúsund milljarðar króna). Þá segir að samningarnir muni leiða til tuga þúsunda nýrra starfa í vopnaframleiðslu í Bandaríkjunum.

Lockheed Martin samdi um að framleiða 150 Black Hawk þyrlur í Sádi-Arabíu, sem er til marks um vilja Sáda til að framleiða eigin vopn og hergögn. Þá mun fyrirtækið Dow Chemical byggja um 100 milljóna dala verksmiðju í Sádi-Arabíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×