Handbolti

Aron og félagar í kjörstöðu til að verða meistarar tíunda árið í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði þrjú mörk.
Aron skoraði þrjú mörk. vísir/epa
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk þegar Veszprém vann sex marka sigur á Pick Szeged, 23-17, í fyrri leik liðanna um ungverska meistaratitilinn í handbolta í dag.

Aron og félagar voru tveimur mörkum undir í hálfleik, 8-10, en sneru dæminu sér í vil í seinni hálfleik. Veszprém spilaði frábæra vörn og fékk aðeins á sig sjö mörk í seinni hálfleiknum.

Máté Lékai og Dragan Gajic skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Veszprém sem er í afar góðri stöðu fyrir seinn leikinn á heimavelli Pick Szeged á miðvikudaginn.

Veszprém hefur 24 sinnum orðið ungverskur meistari, þar af undanfarin níu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×