Handbolti

Guðjón Valur með sjö mörk er Ljónin frá Mannheim tylltu sér á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði sjö mörk úr 11 skotum.
Guðjón Valur skoraði sjö mörk úr 11 skotum. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk þegar Rhein-Neckar Löwen tyllti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með 33-23 sigri á Balingen-Weilstetten í dag.

Guðjón Valur var markahæstur á vellinum en íslenski landsliðsfyrirliðinn hefur átt frábært tímabil með Löwen.

Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen sem hefur unnið níu leiki í röð í þýsku deildinni.

Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Balingen sem er í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar, einu stigi frá öruggu sæti.

Það var lítið skorað þegar Bergischer og Wetzlar gerðu 18-18 jafntefli.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Bergischer sem er 15. sæti deildarinnar, einu stigi og einu sæti frá fallsvæðinu. Björgvin Páll Gústavsson ver mark Bergischer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×