Fótbolti

Guðlaugur Victor valinn leikmaður tímabilsins hjá Esbjerg

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson hefur borið fyrirliðaband Esbjerg á þessu tímabili
Guðlaugur Victor Pálsson hefur borið fyrirliðaband Esbjerg á þessu tímabili vísir/getty
Guðlaugur Victor Pálsson, miðjumaður Esbjerg, var í gær valinn besti leikmaður liðsins á tímabilinu hjá danska félaginu en valið var tilkynnt eftir jafntefli gegn Horsens.

Var hann einnig valinn maður leiksins í leiknum í gær en Esbjerg og Horsens mætast aftur um næstu helgi í seinni hluta umpsilsins upp á sæti í deild þeirra bestu á næsta ári.

Guðlaugur Victor sem hefur leikið frábærlega á miðjunni í vetur var að leikslokum verðlaunaður fyrir að vera valinn maður leiksins ásamt því að vera valinn besti leikmaður tímabilsins.

Umboðsskrifstofan Total Football birti mynd af Guðlaugi með verðlaunin sem sjá má hér fyrir neðan.

Viðtal við Guðlaug eftir leikinn má sjá hér fyrir neðan en seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Horsens á sunnudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×