Viðskipti innlent

Bensínstöð Costco opnuð: Selja bensín á 169,9 krónur

Jóhann K. Jóhannsson og Samúel Karl Ólason skrifa
Costco er þekkt fyrir að bjóða lægra bensínverð en samkeppnisaðilinn til þess að teyma viðskiptavini sína til sín og kaupa aðrar vörur í versluninni.
Costco er þekkt fyrir að bjóða lægra bensínverð en samkeppnisaðilinn til þess að teyma viðskiptavini sína til sín og kaupa aðrar vörur í versluninni. Vísir/Jóhann
Bensínstöð Costco við Kauptún í Garðabæ opnaði í dag og er bensínlítrinn á 169,9 krónur eins og fólk hafði tekið eftir. Líter af Díeselolíu kostar 164,9 krónur. Sé miðað við eldsneytisverð á bensinverd.is er Costco að selja eldsneyti verulega ódýrara en íslensku olíufélögin.

Lítrinn af bensíni hefur ekki kostað undir 170 krónur á lítrann síðan árið 2009. Vert er að hafa í huga að aðildarkort Costco er nauðsynlegt til þess að versla við bensínstöðina.

Costco er þekkt fyrir að bjóða lægra bensínverð en samkeppnisaðilinn til þess að teyma viðskiptavini sína til sín og kaupa aðrar vörur í versluninni.

Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu, sagði við Vísi á föstudaginn að ekki væri búið að ákveða eldsneytisverð hér á landi. Þá sagði hann einnig að mögulegt væri að bensínstöðin yrði opnuð óformlega áður en verslunin opnar á þriðjudaginn.


Tengdar fréttir

Telur að bensínstöðvum muni fækka verulega á næstu árum

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda telur að kaup Haga á olíufyrirtækinu Olís muni leiða til aukinnar samkeppni á eldsneytismarkaði og að bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu muni fækka verulega á næstu misserum. Hlutabréf í Högum hækkuðu um nærri sex prósent á mörkuðum í dag.

Bensínstöð Costco opnuð á undan búðinni

Stefnt er að því að opna bensínstöð Costco við Kauptún í Garðabæ nokkrum dögum áður en verslunin sjálf verður opnuð næstkomandi þriðjudag. Þetta staðfestir Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu.

Hagar verða helmingi stærri

Hagar eru í færi til að auka veltu sína um helming með kaupum á Olís og Lyfju. Sérfræðingur í samkeppnisrétti telur víst að Samkeppniseftirlitið setji skilyrði fyrir kaupunum á Olís. Fjárfestar taka vel í viðskiptin.

Ofmetin Costco-áhrif

Eins og varla hefur farið fram hjá nokkrum manni hyggur bandaríski verslunarrisinn Costco á opnun verslunar á Íslandi nú í sumarbyrjun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×