Innlent

Réðust á tvo menn með klukkustundar millibili

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mennirnir eru grunaðir um tvær líkamsárásir.
Mennirnir eru grunaðir um tvær líkamsárásir. vísir/eyþór
Tvær líkamsárásir komu til kasta lögreglunnar með um það bil klukkustundar millibili í gær en gerendur eru þeir sömu í báðum tilfellum. Mennirnir hafa verið handteknir og verða yfirheyrðir síðar í dag.

Mennirnir eru annars vegar grunaðir um að hafa ráðist þrír saman á annan mann á Njálsgötu, veitt honum áverka og stolið af honum síma. Þeir komust í kjölfarið undan en sjúkraflutningamenn hlúðu að þolandanum á vettvangi.

Klukkutíma síðar fékk lögregla tilkynningu um að tveir menn hefðu ráðist á liggjandi mann við Vitatorg og sparkað í höfuð hans. Árásarmennirnir gáfu þær skýringar að þeir hefðu viljað selja þolandanum síma, en ekki er tekið fram í tilkynningu frá lögreglu hvort um sé að ræða sama síma og þeir stálu af hinum manninum.

Þeir voru í framhaldinu vistaðir í fangageymslum og verða sem fyrr segir yfirheyrðir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×