Innlent

Neyttu fíkniefna í mátunarklefa í Smáralind

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Konurnar tvær eru sagðar hafa neytt fíkniefna í verslun í Smáralind.
Konurnar tvær eru sagðar hafa neytt fíkniefna í verslun í Smáralind. vísir/daníel
Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungum konum í gærkvöldi sem höfðu verið að neyta fíkniefna í mátunarklefa verslunar. Þær voru kærðar fyrir vörslu fíkniefna, eignaspjöll og þjófnað.

Þá voru tveir menn teknir á stolnum bíl á bílastæði við Gnoðarvog í Reykjavík á fimmta tímanum í nótt. Piltarnir eru rúmlega tvítugir og var þrettán ára stúlka með þeim í för. Henni var komið til foreldra og tilkynnt til barnaverndar. Hinir tveir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×