Enski boltinn

Mourinho tilbúinn að hlusta á tilboð í Smalling

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Smalling gæti verið á förum frá Manchester United.
Smalling gæti verið á förum frá Manchester United. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er tilbúinn að hlusta á tilboð í miðvörðinn Chris Smalling. Phil Jones mun hins vegar fá annað tækifæri til að sanna sig hjá félaginu. ESPN greinir frá.

Mourinho hefur gagnrýnt Smalling í vetur og ýjað að því að hann sé ekki nógu harður af sér og of lengi að jafna sig af meiðslum.

Þrátt fyrir meiðsli hefur hinn 27 ára gamli Smalling leikið 35 leiki fyrir United í öllum keppnum á tímabilinu.

Smalling og Jones berjast um sæti í byrjunarliði United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Ajax á morgun. Annar hvor þeirra verður í miðri vörn United ásamt Daley Blind.

Smalling kom til United frá Fulham sumarið 2010 og hefur því verið sjö ár í herbúðum félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×