Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Meistaraefnin í vandræðum | Myndbönd

Valsmenn fagna eftir að Guðjón Pétur Lýðsson kom þeim yfir gegn KR-ingum.
Valsmenn fagna eftir að Guðjón Pétur Lýðsson kom þeim yfir gegn KR-ingum. vísir/anton
Fjórðu umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með þremur leikjum.

Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfiðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Stjarnan og Valur unnu sterka sigra og sitja á toppi deildarinnar með 10 stig.

Fjölnir vann sögulegan sigur á FH sem er aðeins með fimm stig. Breiðablik vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu á Víkingi R. og réði svo fyrrum þjálfara liðsins.

ÍBV er komið með sjö stig eftir sigur í Ólafsvík og Grindavík sótti sigur á Skagann.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Víkingur Ó. 0-3 ÍBV

Víkingur R. 2-3 Breiðablik

Stjarnan 2-1 KA

ÍA 2-3 Grindavík

FH 1-2 Fjölnir

Valur 2-1 KR

Fjölnsmenn gáfu ekkert eftir á móti Íslandsmeisturum FH í kvöld.Vísir/Anton
Góð umferð fyrir ...

... Andra Rúnar Bjarnason

Bolvíkingurinn skoraði sína fyrstu þrennu í efstu deild þegar Grindavík vann 2-3 sigur á ÍA á Akranesi. Andri Rúnar hefur aðallega leikið í neðri deildunum og gert gott mót þar en núna er hann að blómstra í deild þeirra bestu. Fyrir tímabilið hafði Andri Rúnar skorað tvö mörk í efstu deild en hefur hann tvöfaldað þann markafjölda eftir fjórar umferðir í ár. Andri Rúnar og Grindvíkingar eru í fínum málum í 4. sæti deildarinnar með sjö stig.

... Kristján Guðmundsson

Eyjamenn hafa svarað stórtapinu fyrir Stjörnunni í 2. umferð á besta mögulega hátt; með þremur sigrum í röð, tveimur í Pepsi-deildinni og einum í Borgunarbikarnum. Kristján breytti um leikkerfi eftir tapið í Garðabænum og það hefur gefið góða raun. Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eftir skellinn gegn Stjörnunni var talað um krísu í Eyjum en núna er ÍBV í 6. sæti deildarinnar með sjö stig, á undan KR og FH.

... Fjölnismenn

Grafarvogsbúar gerðu góða ferð í Kaplakrika og unnu 1-2 sigur á Íslandsmeisturum FH. Þetta var söguleg stund fyrir Fjölni en þetta var fyrsti sigur liðsins á FH í efstu deild. Fjölnismenn hafa stundum sleppt því að veita FH-ingum keppni í leikjum liðanna en það var allt annað uppi á teningnum í Krikanum í gær. Fjölnismenn eru nú komnir með sjö stig og geta verið nokkuð sáttir við uppskeru sumarsins til þessa.

Víkingar hafa tapað þremur leikjum í röð og eru þjálfaralausir.vísir/ernir
Erfið umferð fyrir ...

... Guðmund Stein Hafsteinsson

Framherjinn stóri og stæðilegi gerði félögum sínum engan greiða þegar hann lét reka sig út af í 0-3 tapi Víkings Ó. fyrir ÍBV á heimavelli. Guðmundur Steinn fékk gult spjald eftir tæpan hálftíma og var á hálum ís eftir það. Á 55. mínútu fékk hann svo sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að fara í Halldór Pál Geirsson, markvörð Eyjamanna. Staðan var 0-1 fyrir ÍBV þegar Guðmundur fékk reisupassann. Einum færri áttu Ólsarar litla möguleika og fengu á sig tvö mörk undir lokin.

... Víkinga

Víkingur R. missti þjálfarann sinn á föstudaginn og tapaði svo fyrir Breiðabliki á sunnudaginn. Ekki góðir dagar í Fossvoginum. Eftir sigurinn góða á KR í 1. umferðinni hefur Víkingur tapað þremur leikjum í röð og staða liðsins er ekki góð. Markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson er meiddur sem og framherjinn Geoffrey Castillon sem skoraði í fyrstu tveimur umferðunum. Víkingar eru enn í þjálfaraleit og þurfa að finna lausn á því máli sem fyrst.

... FH-inga

Íslandsmeistararnir hafa farið rólega af stað og sitja í 8. sæti deildarinnar með aðeins fimm stig. FH-ingar unnu sigur á Skaganum í 1. umferðinni en hafa síðan aðeins náð í tvö stig. Varnarleikur FH hefur verið slakur í upphafi móts; liðið hefur fengið á sig sjö mörk og á enn eftir að halda hreinu. Nýju mennirnir sem FH fékk fyrir tímabilið hafa lítið sýnt. FH mætir KR á sunnudaginn og má ekki við því að tapa þeim leik. Annars er hætta á að Íslandsmeistararnir lendi átta stigum á eftir toppliðunum.

Eyjólfur Héðinsson skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn KA á síðustu stundu.vísir/ernir
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Smári Jökull Jónsson á Valsvelli:

„Þeir félagar hjá KR-útvarpinu eru mættir og byrjaðir að undirbúa sig fyrir leikinn. Þeir verða vafalaust hressir að vanda. Þeir skelltu í viðtal við Óla Jó áðan en Óli hefur staðið við hliðarlínuna í lengri tíma og sagt brandara, hann virðist allavega vera í miklu stuði.“

Kristinn Páll Teitsson í Kaplakrika:

„Það verður að segjast að það er einhver doði yfir Kaplakrikanum þessa stundina, spurning hvort FH-ingar séu að sleikja sárin eftir að hafa horft á eftir Íslandsmeistaratitlinum til Valsmanna í handboltanum í gær? Já eða þá að Hafnfirðingar séu eins og hálf þjóðin í röðinni við Costco.“

Kolbeinn Tumi Daðason á Samsung-vellinum:

„Lára Kristín Pedersen, miðjumaður Stjörnunnar og leigubílstjóri í hjáverkum, stendur vaktina á Samsung-vellinum þar sem verið er að vökva völlinn og gera klárt. Leikmenn hafa aðeins verið að kíkja út á grasið og átta sig á andrúmsloftinu. Koma sér í gírinn. Það ætti að vera lítið mál í þessum toppslag.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Andri Rúnar Bjarnason, Grindavík - 9

Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Víkingur Ó. - 2

Umræðan á #pepsi365

Gullmarkið
Augnablikið
Sérsveitin
Bestur
Trabantinn
120 sekúndur

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×