Enski boltinn

Lokað á Old Trafford í dag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fyrir utan Old Trafford.
Fyrir utan Old Trafford. vísir/getty
Þeir sem ætluðu sér að skoða heimavöll Man. Utd, Old Trafford, í dag munu grípa í tómt enda búið að loka vellinum út af hryðjuverkaárásinni í borginni í gær.

Félagið mun líklega fara yfir öryggisstaðla sína í dag í kjölfar árásarinnar skelfilegu í gær. Þar af leiðandi verður engum hleypt inn á völlinn í dag.

Félagið hefur boðið þeim sem þurfa á að halda aðstoð í dag og munu kraftar starfsmanna félagsins fara í að hjálpa þar sem þarf í borginni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×