Bílar

12 grænustu bílarnir

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai Ioniq Electric er umhverfisvænasti bíll heims þegar allt er tekið til skjalanna.
Hyundai Ioniq Electric er umhverfisvænasti bíll heims þegar allt er tekið til skjalanna.
Hvaða bílar skildu vera þeir grænustu, eða öðru nafni þeir umhverfisvænustu? Þarf þá reyndar að taka inní myndina allt er varðar bílana, það er umhverfisáhrif af framleiðslu þeirra, orkunotkun á líftíma þeirra og förgun. Bílunum er því fylgt frá vöggu til grafar við einkunnagjöfina. Það kemur ef til vill ekki á óvart að allir þeir bílar sem fylla efstu 12 sætin eru tengiltvinnbílar eða hreinræktaðir rafmagnsbílar.

Á listanum eru 3 bílar frá Toyota og kemur það ekki á óvart miðað við þá áherslu sem Toyota leggur á umhverfisvernd í framleiðslu bíla sinna. Kia á tvo bíla á listanum en aðrar framleiðendur aðeins einn bíl. Efstur á blaði er Hyundai Ionic Electric með grænu einkunnina 64 og umhverfisskaðastuðulinn 0,78.





  1. Hyundai Ionic Electric     64           0,78
  2. BMW i3                                64           0,80
  3. Toyota Prius Eco               62           0,85
  4. Fiat 500 E                             62           0,86
  5. Nissan Leaf                         60           0,91
  6. Chevrolet Bolt                   59           0,93
  7. Kia Soul EV                          59           0,94
  8. Toyota Prius Prime          59           0,95
  9. Toyota Prius C                   58           0,97
  10. Ford Focus Electric           58           0,98
  11. Honda Accord Hybrid     58           0,98
  12. Kia Niro FE                           58           0,98
 

Fyrir utan Toyota Prius Eco eru 7 efstu bílarnir hreinræktaðir rafmagnsbílar. Ef samskonar aðferðir eru notaðar til að finna út hvaða bílgerðir eru mestu umhverfissóðarnir þá kemur í ljós að efstir á blaði eru risastóru og öflugu bílarnir Bentley Mulsanne og Continental GT og þar á eftir Mercedes Benz AMG G65 jeppinn. Annars eru stórir og öflugir jeppar helstu bílarnir sem fylla lista mestu umhverfissóðanna. Mercedes Benz AMG G65 er með grænu einkunnina 21 og umhverfisskaðastuðulinn 3,02.

BMW i3 var í öðru sæti listans.





×