Körfubolti

Hárrétt ákvörðun að fara til Warriors

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Durant í leik með Warriors.
Durant í leik með Warriors. vísir/getty
NBA-stjarnan Kevin Durant sér ekki eftir því að hafa farið til Golden State Warriors síðasta sumar.

Það varð gjörsamlega allt vitlaust í Oklahoma City er hann ákvað að fara frá Thunder en þrátt fyrir mikla dramatík sér Durant ekki eftir neinu.

„Þetta var hárrétt ákvörðun hjá mér. Sama hvort við verðum meistarar eða ekki,“ sagði Durant en Warriors er komið í úrslitarimmu deildarinnar og hefur ekki tapað leik í úrslitakeppninni.

„Mér líður eins og ég hafi átt að koma hingað. Þetta er staðurinn minn. Ég nýt hverrar stundar hjá félaginu.“

Durant fór síðast í úrslit deildarinnar árið 2012 með Oklahoma City.

Hann er með 24,8 stig, 7,3 fráköst og 3,7 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppninni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×