Viðskipti innlent

Linda Björk ráðin framkvæmdastjóri hjá Nýherja

Atli Ísleifsson skrifar
Linda Björk Waage.
Linda Björk Waage. Nýherji
Linda Björk Waage hefur verið ráðin framkvæmdastjóri yfir nýju sviði innan Nýherja. Sviðið sem um ræðir nefnist Umsjá, þar sem rekstrarþjónusta og innviðir hafa verið settir undir sama hatt.

Í tilkynningu frá Nýjerja segir að Linda hafi starfað hjá Nýherja frá árinu 2011 og sinnt ýmsum lykilstörfum, síðast sem forstöðumaður þjónustuborðs og UT rekstrar.

„Linda lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009 og BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1997.

Í framkvæmdastjórn Nýherja sitja auk Lindu, Finnur Oddsson, forstjóri, Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri Viðskiptaframtíðar, Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri og Emil Gunnar Einarsson, framkvæmdastjóri Notendalausna.

Linda tekur formlega sæti í framkvæmdastjórn Nýherja þann 1. júlí nk.,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×