Enski boltinn

Sam Allardyce vill ekki vera áfram með Crystal Palace

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sam Allardyce og Jose Mourinho í lokaleik tímabilsins.
Sam Allardyce og Jose Mourinho í lokaleik tímabilsins. Vísir/Getty
Sam Allardyce hefur tilkynnt eiganda Crystal Palace að hann vilji ekki halda áfram sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins.

Allardyce hitti Steve Parish, eiganda félagsins, í kvöld og samkvæmt heimildum Sky Sports var niðurstaðan af þeim fundi að Allardyce vilji ekki halda áfram í þessu starfi.

Það voru engin leiðindi á milli þeirra Allardyce og Parish samkvæmt frétt Sky Sports og málið snýst heldur ekki um peninga til að kaupa nýja leikmenn til liðsins í sumar.

Crystal Palace hefur ekki sagt frá starfslokum Allardyce og það er eins og menn þar á bæ vonist enn til að hann haldi áfram.  Það er þó ekki að fara gerast samkvæmt heimildum Sky Sports.

Sam Allardyce tók við liðinu af Alan Pardew í desember þegar Crystal Palace var í sautjánda sæti og aðeins stigi fyrir ofan fallsætið. Palace-liðið endaði í fjórtánda sæti og var að mestu laust við falldrauginn á lokasprettinum. Lið undir stjórn Allardyce hefur aldrei fallið og það breyttist ekki í ár.

Þetta var fyrsta starf Sam Allardyce eftir að hann hætti óvænt með enska landsliðið eftir aðeins  67 daga í starfi.

Undir stjórn Allardyce vann Palace meðal annars sex af átta leikjum og á þeim kafla vann liðið Chelsea, Arsenal og Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×