Erlent

Ræðismaður Grænlands á Íslandi

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Frá Nuuk á Grænlandi.
Frá Nuuk á Grænlandi. vísir/afp
Allir 23 þingmenn grænlenska þingsins hafa nú samþykkt að opna ræðismannsskrifstofu á Íslandi.

Með tillögunni sem lögð var fyrir þingið vill grænlenska landsstjórnin tryggja að Grænlendingar njóti áfram góðs af samvinnu þeirra við Íslendinga.

Bent var á að á pólitískum vettvangi væri einkum um að ræða samvinnu í sjávarútvegi, að því er kemur fram í frétt sem birtist á vef grænlenska útvarpsins.

Íslensk ræðismannsskrifstofa var opnuð í Nuuk á Grænlandi árið 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×