Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Karólína Helga Símonardóttir, sem er varamaður á Alþingi, missti nýlega sambýlismann sinn til þrettán ára. Hún erfir ekki manninn sinn og fær ekki að sitja í óskiptu búi. Karólína gagnrýnir gamaldags erfðareglur á Íslandi, en rætt verður við hana í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Þar höldum við líka áfram umfjöllun um Costco, en dæmi er um að verð á einstöku raftæki hafi lækkað um liðlega 100 þúsund krónur eftir opnun verslunarinnar í gær.

Þá kíkjum við í Raufarhólshelli sem nú verður ferðamannastaður og hittum skapandi grunnskólabörn sem tóku þátt í kvikmyndahátíð í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×