Innlent

Ráðherra eflir vöktun á ástandi Mývatns

Atli Ísleifsson skrifar
Mývatn hefur verið á válista Umhverfisstofnunar lengi.
Mývatn hefur verið á válista Umhverfisstofnunar lengi. vísir/vilhelm
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur falið Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn (RAMÝ) og Umhverfisstofnun að efla vöktun á innstreymi næringarefna í Mývatn og fleiri þáttum nú í sumar.

Slíkt sé nauðsynlegur þáttur í tengslum við aðgerðir til að draga úr áhrifum mannsins á lífríki vatnsins, svo sem í fráveitumálum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

Líkt og miðlar 365 hafa mikið fjallað um síðasta ári eru frárennslismál Skútustaðahrepps ekki í samræmi við lög og reglur, og er talið að mengun frá byggð eigi sinn þátt í ýmsum vandamálum sem steðja að lífríki Mývatns.

Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að lífríki Mývatns hafi verið vaktað um áratugaskeið, einkum af RAMÝ. „Að mati RAMÝ og annarra er æskilegt að efla vöktun á sumum þáttum, sérstaklega innstreymi næringarefna í vatnið og blábakteríu- og þörungablómum, sem eru mjög umfangsmiklir sum ár en minni önnur. Ráðuneytið lét gera samantekt á stöðu mála varðandi uppsprettur og innstreymi næringarefna í Mývatn, sem kom út í ársbyrjun 2016, en þar og í skýrslu starfshóps um málefni Mývatns síðar á árinu komu fram tillögur um að efla vöktun á þessum þáttum.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur óskað eftir áætlunum um umbætur í fráveitumálum frá sveitarstjórn Skútustaðahrepps og rekstaraðilum við Mývatn fyrir 17. júní nk. Sveitarstjórnin hefur óskað eftir aðstoð frá ríkisvaldinu við þetta verkefni og sent erindi þess efnis. Ríkisstjórnin samþykkti 5. maí heimild til að ræða við sveitarfélagið um mögulega aðkomu ríkisins að fráveituframkvæmdum.

Efling vöktunar er nauðsynlegur þáttur í þeirri umræðu. Með henni er vonast til að fáist betri mynd af innstreymi næringarefna í Mývatn og hlut einstakra uppsprettna, sem geti gagnast varðandi áherslur og forgangsröðun aðgerða. Einnig getur betri vöktun gagnast í framtíðinni við að meta árangur aðgerða. Stefnt er að því að efld vöktun á næringarefnum og blábakteríu- og þörungasvifi hefjist strax nú í sumar, en að heildstæð vöktunaráætlun á Mývatni, þar sem tillit er tekið til fleiri þátta og núverandi vöktun er felld inn, liggi fyrir í haust,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Enginn þriggja ráðherra tók af skarið við Mývatn

„Mikill tími og orka hefur farið í ýmsa fundi með ráðamönnum þjóðarinnar til að fá ríkið að borðinu í fráveitumálum en án sýnilegs árangurs,“ skrifar Þorsteinn Gunnarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×