Körfubolti

Erfiðara að verjast Celtics en Warriors

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tyronn Lue.
Tyronn Lue. vísir/getty
Tyronn Lue, þjálfari Cleveland Cavaliers, er ekki farinn að hugsa um úrslitarimmu gegn Golden State Warriors í NBA-deildinni enda er hans lið ekki komið þangað.

Cleveland er reyndar aðeins einum sigri frá því að spila við Golden State um titilinn þriðja árið í röð.

„Ég hugsa ekki einu sinni um Golden State. Við erum bara að hugsa um Boston. Það er erfiðara að verjast sóknarleik þeirra en sóknarleik Golden State,“ sagði Lue en þessi ummæli hafa eðlilega vakið athygli þar sem sóknarlið Warriors er með þeim öflugri frá upphafi.

Lue verður líklega minntur á þessi ummæli er rimman gegn Warriors hefst en enginn býst við öðru en að Cleveland fari í úrslit.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×