Innlent

Krefur bæjarstjóra Vestmannaeyja um afsökunarbeiðni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ferjan Baldur við höfn í Vestmannaeyjum.
Ferjan Baldur við höfn í Vestmannaeyjum. Vísir/Gísli Óskarsson
Halldór Jóhannesson, yfirstýrimaður á Baldri, segir að sér finnist að Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja, eigi að skammast sín og biðja áhöfn Baldurs afsökunar á því sem hann kallar endalaus leiðindi og skítkasti sem Elliði hafi viðhaft opinberlega í garð þeirra. Þetta kemur fram í opnu bréfi Halldórs.

Ferjan Baldur tók við áætlunarferðum Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum í byrjun maí, á meðan Herjólfur hefur verið í slippi. Til að mynda lögðust ferðir Baldurs af þann 2. maí síðastliðinn vegna óhagstæðra skilyrða í Landeyjahöfn og hefur Baldur ekki leyfi til siglinga til Þorlákshafnar.

Við það tilefni sagði bæjarstjórinn að staðan væri skelfileg.

„Þessi staða er alveg skelfilega bagaleg og hreint furðulegt að einhverjum hafi látið sér detta í hug að fá skip til þjónustu við Vestmannaeyjar sem er í raun og veru jafn slæmt og jafnvel verra en núverandi Herjólfur í siglingum í Landeyjahöfn og getur síðan ekki þjónustað í Þorlákshöfn.“

Sjá einnig: „Þessi staða er alveg skelfilega bagaleg.“

„Sæll Hr. bæjarstjóri, Elliði Vignisson. Nú er veru okkar á ferjunni Baldri að ljúka hér í Eyjum. Við höfum reynt að gera okkar besta og standa okkur eins vel og við gátum. Miðað við það sem við höfum í höndunum og það veðurfar sem að almættið skammtaði okkur.“

Í bréfi sínu segir Halldór að hann telji áhöfninni hafa staðið sig nokkuð vel, þó ekki hafi verið hægt að sigla fyrsta daginn vegna veðurs og þess að skipið var ekki klárt fyrir hafnirnar.

Hann segir reynt hafi verið að haga siglingum þannig að sem best hafi farið um fólk, þó það hafi kallað á nokkrar lundaskoðunarferðir að Elliðaey, ferðamönnum til mikillar ánægju.

„Það virðast all flestir Eyjamenn hafa skilning á þessu en alltaf eru einhverjir leiðindapungar í hverju partýi. Og þar fórst þú fremstur í flokki Hr. bæjarstjóri.“

Halldór tekur fram í lok bréfsins að hann skrifi það alfarið í eigin nafni en ekki annarra áhafnarmeðlima. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×