Fótbolti

Mandzukic framlengir við Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mandzukic elskar að lyfta bikurum með Juve.
Mandzukic elskar að lyfta bikurum með Juve. vísir/getty
Króatíski framherjinn Mario Madzukic mun ekki hafa vistaskipti í sumar því hann er búinn að framlengja við Juventus.

Nýi samningurinn gildir út leiktíðina 2020. Þó svo Madzukic skori ekki beint eins og óður maður þá eru forráðamenn Juve ánægðir með hann.

Hann skoraði 10 mörk í 48 leikjum í vetur og hefur í heildina skorað 17 mörk í 60 leikjum fyrir félagið.

Króatinn kom til félagsins frá Atletico Madrid árið 2015 en hann var þar áður í herbúðum Bayern.

Mandzukic hefur skorað 29 mörk í 79 landsleikjum fyrir Króatíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×