Lífið

Bieber kunni ekki textann í Despacito

Birgir Olgeirsson skrifar
Justin Bieber.
Justin Bieber. Vísir/Getty
Flest allir hafa heyrt lagið Despacito með Luis Fonsi og Daddy Yankee sem hefur verið að gera allt vitlaust undanfarið. Til eru nokkrar útgáfar af þessum suðræna slagara en í einni þeirra er kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber með í för.

Einhverjir gætu ætlað að hann kynni texta lagsins, en svo virðist ekki vera.

Þessi ungi tónlistarmaður var staddur á skemmtistaðnum 10ak í New York síðastliðið þriðjudagskvöld þar sem honum var réttu hljóðnemi og hann beðinn um að syngja lagið.

Bieber lét það ekki trufla sig að muna ekki textann, heldur greip hljóðnemann og söng: „Despacito, ég kann ekki textann“ og hélt áfram með því að syngja einfaldlega: Bababababababa.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan: 

Hér fyrir neðan má heyra Despacito í fullri lengd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×