Formúla 1

Mónakókappaksturinn í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Button kitlar aftur pinnann um helgina.
Button kitlar aftur pinnann um helgina. Vísir/Getty
Mónakókappaksturinn í Formúlu 1, sem fer fram á sunnudag, verður í beinni útsendingu og ólæstri dagskrá á Stöð 2 Sport, sem og æfingar og tímatökurnar á morgun.

Keppnin í Mónakó er ein sú stærsta á hverju keppnistímabili og hefur verið haldin árlega síðan 1929. Keppt er á götum borgarinnar og þykir brautin ein sú erfiðasta í heimi.

Lewis Hamilton á Mercedes vann keppnina í fyrra en Bretinn hefur í ár unnið tvær af fyrstu fimm keppnum tímabilsins og er í öðru sæti stigakeppni ökuþóra, sex stigum á eftir hinum þýska Sebastian Vettel, ökuþór Ferrari.

Jenson Button snýr aftur í Formúluna um helgina en hann hætti eftir keppnistímbilið í fyrra. Button kemur inn í lið McLaren fyrir aðeins þessa einu keppni en hann er að leysa Fernando Alonso af á meðan Spánverjinn keppir í Indianapolis 500 kappakstrinum í Bandaríkjunum.

Button bar sigur úr býtum í Mónakó fyrir átta árum síðan og var tólfti fljótasti á æfingum í gær.

Beinar útsendingar frá Mónakó hefjast klukkan 08.55 á laugardagsmorgun en þá fer fram lokaæfingin fyrir tímatökurnar, sem hefjast klukkan 11.50.

Útsending frá keppninni sjálfri á sunnudag hefst klukkan 11.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×