Sport

Vita allir að ég mun aldrei berjast aftur við Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aldo og Conor er ekki vel til vina.
Aldo og Conor er ekki vel til vina. vísir/getty
Eftir rúma viku mun Brasilíumaðurinn Jose Aldo berjast við Max Holloway um titilinn í fjaðurvigt UFC. Titilinn sem var tekinn af Conor McGregor.

Conor varð fjaðurvigtarmeistari er hann rotaði Aldo á 13 sekúndum. Ótrúlegasti titilbardagi sögunnar en Aldo hafði aldrei tapað áður en hann lenti á hnefunum á Conor.

Margir vilja sjá þá berjast aftur en Aldo sér það ekki gerast.

„Það er alltaf verið að spyrja mig hvort ég vilji ekki berjast við hann aftur. Það er ekki undir mér komið heldur UFC. UFC reyndi að koma öðrum bardaga á en Conor samþykkti það ekki því það mun aldrei endurtaka sig sem gerðist hjá okkur í fyrsta bardaganum. Það vita allir að við munum ekki berjast aftur,“ sagði Aldo.

„Mér gæti ekki verið meira sama um hvað Conor gerir og hvað hann gerir ekki. Ég er UFC-bardagakappi og bestur í fjaðurvigtinni. Ég er að einbeita mér að því.“

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×