Lífið

Þóra Margrét og Melania Trump glæsilegar saman

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá hópinn. Brigitte Macron er lengst til vinstri, Melania Trump stendur fyrir miðju í svörtum kjól og Þóra er með rauðan hring utan um sig.
Hér má sjá hópinn. Brigitte Macron er lengst til vinstri, Melania Trump stendur fyrir miðju í svörtum kjól og Þóra er með rauðan hring utan um sig. vísir/getty
Leiðtogar ríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins mættu til fundar í Brussel í Belgíu í gær  eins og Vísir hefur fjallað um.

Þar vakti helst athygli hegðun og orð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta en leiðtogarnir mættu ásamt mökum sínum. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, var á staðnum ásamt eiginkonu sinni Þóru Margréti Baldvinsdóttur.

Daily Mail fjallar ítarlega um maka leiðtoganna og þá sérstaklega um Melaniu Trump, eiginkonu Donalds Trumps, og Brigitte Macron, eiginkonu Emmanuels Macron, forseta Frakklands.

Þóra kom einstaklega vel fyrir og sést hún á hópmynd sem tekin var af mökunum öllum saman. Þóra hefur slegið í gegn í þáttunum Falleg íslensk heimili á Stöð 2 undanfarnar vikur.

Eins og áður segir vöktu þær Melania og Brigitte mesta athygli samkvæmt frétt Daily Mail. Melania er sögð hafa geislað allan tímann á meðan þyngra hafi verið yfir Brigitte Macron.

Hér má sjá nærmynd af Þóru.vísir/getty

Tengdar fréttir

Trump vill að bandamenn sínir borgi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tjáði aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins á fundi í dag að þau þyrftu að borga sinn skerf af framlögum til varnarmála. Hann talaði einnig um hryðjuverkaógnina.

Trump segir rannsókn á upplýsingalekanum nauðsynlega

Bresk yfirvöld tóku ákvörðun um að stöðva upplýsingaflæði á milli landanna tveggja í ljósi þessa leka og hefur Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, lagt áherslu á að allar upplýsingar sem deilt sé á milli landanna tveggja verði að vera tryggðar og öruggar til að samstarfið gangi upp.

Trump skaut á leiðtoga annarra NATO-ríkja

Bandaríkjaforseti vill aukin framlög aðildarríkja NATO til varnarmála. 23 ríki verja minna í varnarmál en miðað er við. NATO framtíðarinnar þyrfti að einbeita sér að hryðjuverkum. Bretar ósáttir við Bandaríkjamenn vegna leka um ranns






Fleiri fréttir

Sjá meira


×