Innlent

Sál­fræðingur segir það ekki endi­lega góða hug­mynd að fara með börnin í Costco

Birgir Olgeirsson skrifar
Fjölmargir lögðu leið sína í Costco í gær.
Fjölmargir lögðu leið sína í Costco í gær. Vísir/Anton Brink
Örtröð var í versluninni Costco í Kauptúni í Garðabæ í gær, enda margir sem nýttu fríið sitt á uppstigningardegi til að kíkja þangað.

Í Facebook-hópnum Keypt í Costco Ísl. – Myndir og verð, sem telur um 37 þúsund manns þegar þetta er ritað, voru foreldrar varaðir við að fara með börnin sín í Costco í gær ef þau voru ekki stemmd fyrir því. Þá sérstaklega í ljósi þess að ferð í Costco getur staðið yfir í allt að einn og hálfan klukkutíma þegar örtröðin er sem mest líkt og raun bar vitni í gær.

Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur.Vísir
„Það er stappað og heitt þarna inni og þetta er síðasti staðurinn sem þau vilja vera á,“ ritaði einn þeirra sem er meðlimur í þessum hópi og bætti annar við.

„Það virðist vera full þörf á þessari ábendingu. Ég fór í gær og þá var ekki troðið og það var skelfilegt að sjá grátandi börn sem voru svo gjörsamlega búin að fá nóg. Það eru ekki öll börn sem þola þetta álag sem fylgir því að fara í búðir, hvað þá svona búðir.“

Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur hjá Litlu kvíðameðferðarmiðstöðinni, segir það full mikið í lagt að foreldrar ættu að hafa áhyggjur af því að fara með börnin sín í Costco. Varanlegur skaði muni ekki hljótast af því ef börnin þeirra gráti.

Steinunn segir hins vegar að það sé ekki beint skynsamlegt að taka börnin sín með sér í verslunarferð í Costco sem getur tekið þó nokkurn tíma þegar aðsóknin er jafn mikil og raun bar vitni í gær.

„Það er ekki endilega góð hugmynd ef ef þú ætlar að gera það þá getur þú undirbúið þig. Tekið smá nesti með fyrir barnið og leikfang fyrir það. Þú getur einnig látið barnið hjálpa þér að kaupa inn,“ segir Steinunn en bendir á að pakkningarnar í Costco séu mögulega það stórar að erfitt sé að láta lítil börn aðstoða sig með þær.

„En krökkum finnst gaman að fá að vera aðstoðarmenn,“ segir Steinunn en ítrekar að þetta sé ekki eitthvað til að hafa áhyggjur af. „Hafið það hins vegar í huga að þetta getur orðið hrikalega erfitt fyrir ykkur bæði, börn og foreldra.


Tengdar fréttir

Bónus fylgist grannt með Costco

„Við erum stolt af því að verðin hjá okkur eru í mörgum tilfellum sambærileg og hjá næststærsta smásala heims,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, um hvort opnun Costco hafi haft einhver áhrif á Bónus það sem af er vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×