Enski boltinn

Zabaleta farinn til West Ham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zabaleta kveður Man. City.
Zabaleta kveður Man. City. vísir/getty
Varnarmaðurinn Pablo Zabaleta samdi í morgun við West Ham.

Samningur hans við Man. City er að renna út og var hann kvaddur með virktum eftir lokaleik félagsins á tímabilinu.

Honum var því frjálst að fara hvert sem hann vill og ákvað að skrifa undir tveggja ára samning við Hamrana.

Argentínumaðurinn er orðinn 32 ára gamall og á að baki 58 landsleiki fyrir argentínska landsliðið. Hann kom til Man. City frá Espanyol árið 2008 og spilaði yfir 300 leiki fyrir City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×