Lífið

Karma beit þennan í rassinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Oft gott að anda bara inn og út og róa sig.
Oft gott að anda bara inn og út og róa sig.
Stundum borgar sig ekki að vera pirraður á almannafæri og lenti einn Bandaríkjamaður heldur betur í slæmu atviki í gær.

Hann var að ganga yfir götu þegar það kom maður akandi að honum. Manninum þótti bíllinn koma óeðlilega hratt að honum og lét því ökumanninn heldur betur heyra.

Hann gleymdi sér það mikið að hann gekk beint á staur sem stóð fyrir framan hann. Ökumaðurinn var að taka upp myndband á símann sinn og náði atvikinu eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×