Enski boltinn

Valencia framlengir við Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valencia er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Man. Utd.
Valencia er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Man. Utd. vísir/getty
Antonio Valencia skrifaði í dag undir nýjan samning við Man. Utd.

Nýi samningurinn er til ársins 2019 og er þess utan með möguleika á framlengingu til eins árs í viðbót.

Valencia hefur blómstrað í bakvarðarstöðunni hjá Man. Utd í vetur og stuðningsmenn Man. Utd fá meira af honum þar.

Frá árinu 2011 hefur Valencia unnið 264 tæklingar eða fleiri en allir liðsfélagar hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×