Fótbolti

Sampaoli tekur við Argentínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sampaoli í leik með Sevilla á dögunum.
Sampaoli í leik með Sevilla á dögunum. vísir/getty
Argentínska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest það sem hefur legið í loftinu í margar vikur. Jorge Sampaoli tekur við landsliði þjóðarinnar.

Sampaoli hefur verið þjálfari Sevilla í vetur en spænska félagið verður nú að finna nýjan þjálfara annað árið í röð.

Hinn 57 ára gamli Sampaoli var landsliðsþjálfari Síle frá 2012 til 2016 áður en hann réði sig til Sevilla.

Hann er í miklum metum í heimalandi sínu þar sem til mikils er ætlast af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×