Bílar

Rafmagnsbílar verða ódýrari en bílar með brunavélar innan áratugar

Finnur Thorlacius skrifar
Renault Zoe rafmagnsbíllinn.
Renault Zoe rafmagnsbíllinn.
Áhersla flestra bílaframleiðenda þessi misserin er á framleiðslu rafmagnsbíla og slíkum bílum hefur fjölgað mjög hvort sem þeir eru tengiltvinnbílar eða hreinræktaðir rafmagnsbílar. Slíkir bílar hafa þó verið dýrari í framleiðslu og kaupum en hefbundnir brunabílar fram að þessu og verður svo í nokkur ár í viðbót.

Því er þó spáð að rafmagnsbílar verði orðnir ódýrari en bílar með brunavélar innan áratugar. Bloomberg New Energy Finance spáir því að með hríðlækkandi verði á rafhlöðum í bíla, sem nú eru um helmingur kostnaðar við framleiðslu þeirra, verði verð þeirra orðið lægra en á brunabílum árið 2025, eins og sjá má á grafinu hér að neðan.

Árið 2030 mun talsverðu muna á verði rafmagnsbíla samanborið við bíla með brunavélar og þá má búast við að þeir verði að miklu leiti búnir að leysa þá af hólmi, með afara jákvæðum áhrifum á umhverfið. Bloomberg spáir því að verð á rafhlöðum muni falla um 77% frá árinu 2016 til 2030.

Renault, sem framleiðir smá Zoe rafmagnsbílinn, vill meina að svo snemma sem árið 2020 verði eignarhald á þeim bíl verða ódýrara en í brunabíl af sömu stærð. Er þá einnig tekið tillit til reksturs bílsins, því mikið sparast á líftíma hans við ódýrari kaup á rafmagni en bensíns eða dísilolíu.

Rafmagnsbílar verða orðnir ódýrari árið 2015.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×