Tónlist

Hip-hop veisla á Prikinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það skapast alltaf mikil stemning á Lóunni.
Það skapast alltaf mikil stemning á Lóunni.
Hinn árlegi viðburður LÓA verður á Prikinu á laugardagskvöldið en þar koma saman margir helstu plötusnúðar landsins og má þar nefna: B-Ruff, Young Nazareth, Rampage, Egill Spegill, Karítas, Plútó, Logi Pedro.

Einnig munu rapparar á borð við Herra Hnetusmjör, Sturla Atlas og Birnir grípa í hljóðnemann.

Efri hæðin á Prikinu verður breytt í dansgólf og verður Funktion aukakerfi frá Ofur á svæðinu til að sinna þörfum allra gestanna.

Dagskráin hefst klukkan 21 annað kvöld og kostar ekkert inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×