Formúla 1

Vettel: Kominn tími til að Ferrari vinni í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel.
Sebastian Vettel. Vísir/Getty
Ferrari hefur ekki unnið í Mónakó síðan 2001 þegar Michael Schumacher kom fyrstur í mark.

„Ég myndi segja að það sé kominn tími til að Ferrari vinni hér aftur. Okkur bráðlangar að vinna þessa keppni. Það vilja allir vinna í Mónakó enda sérstök keppni. Ég held að ef allir fengju að velja eina keppni á tímabilinu til að vinna myndu allir velja Mónakó,“ sagði Vettel.

Vettel byrjaði helgina vel, varð annar á æfingum í gær á eftir Lewis Hamilton á Mercedes en fljótastur á seinni æfingunni.

Hann er hingað til sá eini sem hefur stungið sér undir eina mínútu og 13 sekúndur. Hann á hraðasta hring sem ekinn hefur verið á brautinni í því formi sem hún er núna.

Tímatakan skiptir hvergi meira máli en einmitt á brautinni í Mónakó. Það verður því gríðarleg spenna um helgina, sérstaklega þegar tímatakan fer fram á laugardag.

Mercedes liðið átti erfitt með uppsetningu bílsins á seinni æfingu gærdagsins en er þrátt fyrir allt líklegt til afreka á laugardag og sunnudag.

Hamilton vill ná að vinna í Mónakó annað árið í röð. Hann vann í fyrra eftir ótrúleg mistök verkfræðinga Red Bull liðsins, sem kölluðu Daniel Ricciardo inn á þjónustusvæðið að óþörfu, sem kostaði hann allt að því unna keppni.

Mónakókappaksturinn í Formúlu 1 verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport á sunnudag, sem og æfingar og tímatökur á laugardag. Kynntu þér Sportpakkann hjá 365 á 365.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×