Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Birgi Jakobssyni landlækni líst vel á hugmyndir um að setja ytri stjórn yfir Landspítalann. Rætt verður við Birgi í fréttum Stöðvar 2 sem hefjast á slaginu 18:30 í kvöld.

Einnig verður rætt við tvo norska sálfræðinga sem hafa þróað nýja meðferð við þráhyggju sem á lækna fólk á einungis fjórum dögum.

Þá verður fjallað um nýtt leikfang, þyrilskífuna eða Fidget-Spinner, sem er að slá öll met um þessar mundir og endurbyggingu Laugarvatnshellis sem verður opnaður ferðamönnum um næstu mánaðamót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×