Viðskipti innlent

Einn stærsti eigandi Arion setur söluferlið í uppnám

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/Eyþór
Salan á Arion-banka er sögð í uppnámi þar sem þar sem vogunarsjóðurinn Och-Ziff Capital, sem keypti 6,6% hlut í bankanum fyrr á þessu ári af Kaupþingi, hefur ekki lagt fram beiðni til Fjármálaeftirlitsins um að fá heimild til að fara með virkan eignarhlut í bankanum.

Heimildir Morgunblaðsins herma að það sé vegna þess að fyrirtækið telji alþjóðlega orðsporsáhættu felast í því ef Fjármálaeftirlitið hafnar beiðninni. Och-Ziff Capital er einn stærsti stærsti eigandi Kaupþings en vogunarsjóðurinn var í hópi félaga sem keypti um 30 prósenta hlut í bankanum í mars síðastliðnum.

Tvö félaganna sem keyptu á sama tíma, Taconic Capital (9,99%) og Attestor Capital (9,99%), tilkynntu FME að þau hygðust fara með virkan eignarhlut í bankanum, hvort í sínu lagi. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki telst virkur eignarhlutur vera 10% eða meira. Och-Ziff keypti um 6,6% hlut sem fyrr segir en er meðal stærstu eigenda Kaupþings og fer því yfir 10% mörkin sem beinn og óbeinn eigandi að bankanum.

Sjá einnig: Goldman Sachs og þrír sjóðir kaupa um 30% í Arion 

Í tilkynningu sem Arion sendi frá sér í tenglsum við kaupin á 6,6% hlutnum segir að Och-Ziff sé eitt af stærstu fyrirtækjum heims á sviði sérhæfðrar eignastýringar og að virði eigna í stýringu þess sé um 34 milljarðar dollara. Meðal fjárfesta Och-Ziff eru lífeyrissjóðir, sjóðasjóðir, stofnanir og styrktarsjóðir, fyrirtæki og aðrar stofnanir, einkabankar og fjársterkir einstaklingar.

Mun fyrirtækið hafa fengið óformleg skilaboð frá íslenskum eftirlitsaðilum um að hætta væri á að það yrði ekki metið hæft til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Er það ekki síst vegna þess að fyrirtækið hefur átt erfitt uppdráttar á síðustu mánuðum, eins og Vísir hefur greint frá. Þannig lækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s lánshæfiseinkunn Och-Ziff niður í ruslflokk, degi eftir kaupin en félagið fór þá fór úr BB+ í BB.

Þá var félagið dæmt til að greiða vegna mútuhneykslis sem teygði sig til fimm Afríku­ríkja og félst Och-Ziff á að greiða sekt upp á 213 milljónir dala, eða um 21,3 milljarða íslenskra króna.

Forsvarsmann Och-Ziff meta það sem svo að það sé vart á orðsporsvandann bætandi hafni FME beiðni félagsins um virkan eignarhlut. Það gæti komið til með að smitast út í aðra starfsemi sjóðsins sem skráður er í kauphöllina í New York.


Tengdar fréttir

Vogunarsjóðir með kauprétt á 22 prósenta hlut í Arion fram í september

Kaupréttur bandarískra vogunarsjóða og fjárfestingarbankans Goldman Sachs, sem eignuðust um 30 prósenta hlut í Arion banka fyrr á árinu fyrir um 49 milljarða, á tæplega 22 prósenta hlut til viðbótar í bankanum gildir til 19. september næstkomandi, eða sex mánuðum eftir að tilkynnt var um kaupin.

Goldman Sachs og þrír sjóðir kaupa um 30 prósent í Arion banka

Í tilkynningu sem Kaupþing sendi frá sér rétt í þessu til Kauphallarinnar kemur fram að samkomulagið geri jafnframt ráð fyrir að fjárfestahópurinn fái kauprétt að 21,9 prósenta hlut til viðbótar sem verður á hærra gengi en greitt var fyrir hlutinn í lokaða útboðinu.

Och-Ziff í ruslflokk degi eftir kaupin í Arion

Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn Och-Ziff Capital Manangement Group í gær niður í ruslflokk, degi eftir að sjóður á vegum Och-Ziff keypti 6,6 prósenta hlut í Arion banka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×