Innlent

Tvo aukastafi þurfti til að skera úr um dúx Flugskólans

Stefán Ó. Jónsson skrifar
ATPL hópur Flugskóla Íslands, ásamt skólastjóra Flugskóla Íslands, skólameistara Tækniskólans og aðstoðarskólameistara en flugskóli Íslands er einn af undirskólum Tækniskólans.
ATPL hópur Flugskóla Íslands, ásamt skólastjóra Flugskóla Íslands, skólameistara Tækniskólans og aðstoðarskólameistara en flugskóli Íslands er einn af undirskólum Tækniskólans. Aðsend
Flugskóli Íslands brautskráði 58 nemendur við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu, miðvikudaginn 24. maí. Fram kemur í tilkynningu frá Flugskóla Íslands er þetta stærsti hópur atvinnuflugmanna sem nokkur skóli hefur útskrifað hér á landi.

Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, nefndi það í ræðu sinni að vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu kallar atvinnulífið á fagmenntaða flugmenn sem aldrei fyrr.

Fjögur fyrirtæki veittu viðurkenningu fyrir bestan heildarárangur í atvinnuflugmannsnámi; Air Atlanta, Icelandair, Wow Air og Norlandair en það var Daníel Örn Steinarsson sem hlaut þær viðurkenningar.

Einnig hlutu Steinar Andri Einarsson og Snædís Erla Leósdóttir viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Til þess að skera úr um röðun á hæstu einkunn, þurfti að nota tvo aukastafi en sex nemendur skólans voru með 9,7 í lokaeinkunn.

Allir þessir sex nemendurnir fengu að launum flugtíma í þotuflughermi skólans.

Nemandi ársins hjá Flugskóla Íslands, valinn af stjórnendum skólans, er Sigurður Ingi Jónsson. Sigurður var valinn fyrir áræðni og elju að ljúka atvinnuflugmannsnámi 58 ára að aldri. Norlandair gefur nemanda ársins gjafabréf.





Nemandi ársins, Sigurður Ingi Jónsson.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×