Enski boltinn

Juan Mata dáðist að fegurð Nauthólsvíkur

Anton Egilsson skrifar
Juan Mata var að taka myndir í Nauthólsvík þegar Bjarni Ævar Árnason og Guðmundur Geir Jónsson rákust á hann.
Juan Mata var að taka myndir í Nauthólsvík þegar Bjarni Ævar Árnason og Guðmundur Geir Jónsson rákust á hann. Mynd: Bjarni Ævar Árnason
Juan Mata, leikmaður Manchester United á Englandi, er staddur á Íslandi um þessar mundir. Hann ku vera í fríi hér á landi ásamt fjölskyldu sinni en hann spókaði sig um í Nauthólsvík í gær.

Þeir Bjarni Ævar Árnason og Guðmundur Geir Jónsson rákust á kappann í Nauthólsvík í gær. Í samtali við Vísi sagði Bjarni að Mata hafi verið að taka yfirlitsmyndir þegar þeir komu auga á hann. Hann hafi verið hinn vinalegasti og gefið sér tíma til að spjalla við þá félaga.

Hinn 29 ára gamli Spánverji var í liði United sem bar sigurorð af Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fram fór á Vinavöllum í Stokkhólmi á miðvikudaginn síðastliðinn. Þeir Bjarni og Guðmundur eru báðir miklir aðdáendur Manchester United og óskuðu honum að sjálfsögðu til hamingju með sigurinn.

„Það var bara það fyrsta sem við gerðum,“ sagði Bjarni.

Mata hefur verið í herbúðum Manchester United frá árinu 2014 en hann kom þangað frá Chelsea. Hann á að baki 41 landsleik fyrir Spán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×