Innlent

Megum ekki oftúlka niðurstöður um gæði heilbrigðiskerfisins

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Landlæknir er ósammála formanni Læknafélags Reykjavíkur um að Íslendingar hafi talað heilbrigðiskerfið niður en Ísland er með annað besta heilbrigðiskerfi í heimi samkvæmt alþjóðlegri rannsókn sem birt var nýlega. Hann segir að þess verði gætt að niðurstöður rannsókna séu ekki oftúlkaðar.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á fimmtudag sagði Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur að miðað við niðurstöður alþjóðlegrar skýrslu, þar sem fram kemur að heilbrigðiskerfið á Íslandi væri það næst besta í heiminum, bendi allt til þess að Íslendingar hafi talað heilbrigðiskerfið niður og gleymt því hversu gott það sé. Birgir Jakobsson, landlæknir tekur ekki undir orð formanns læknafélagsins.

Sjá einnig: Íslenska heilbrigðiskerfið metið það næst besta í heimi

„Ég er ekki sammála því að við höfum verið að tala niður kerfið. Við höfum verið að tala um allt aðra hluti en verið er að tala um í þessari grein. Í þessari grein er verið að bera saman löndin hvað varðar sjúkdóma sem eru raunverulega, að verulegu leyti, til ekki lengur til á Íslandi, þ.e.a.s. við höfum náð verulegum árangri í ungabarnaeftirliti og nýburalækningum og mæðravernd. Bólusetningaverkefni þýða það að sýkingasjúkdómar eru ekki til á Íslandi, berklar eru nánast horfnir og svo framvegis,“ segir Birgir og bendir á að fyrir því séu margar ástæður - „ og heilbrigðiskerfið á sinn þátt í því. Það eru aðrir þættir sem eiga líka verulegan þátt, eins og breyttur lífstíll, minni reykingar, aukin hreyfing, betri efnahagur o.s. frv. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við séum að draga réttar ályktanir af svona rannsóknum,“ segir Birgir.

Rétt að passa sig á oftúlkun

Niðurstöður rannsóknarinnar voru birt í vikunni í hinu virta læknatímariti The Lancet en í henni voru heilbrigðiskerfi 195 landa borin saman. Í rannsókninni var heilbrigðisvísitala landanna reiknuð út frá gæðum og aðgengi með tilliti til ótímabærra dauðsfalla þeirra sem eru 75 ára og yngri.

„Ég held að maður verði að passa sig á því að oftúlka ekki svona niðurstöður og halda að allt sé gott. Allar þjóðir sem eru ofarlega á þessum skala, í þessari grein, eru líka að ræða vandamálin í sínu heilbrigðiskerfi. Þannig að það er enginn búinn að finna þetta fullkomna kerfi,“ segir Birgir Jakobsson, landlæknir.


Tengdar fréttir

Íslenska heilbrigðiskerfið metið það næst besta í heimi

Formaður læknafélags Reykjavíkur segir að niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar skýrslu þar sem íslenska heilbrigðiskerfið er metið það næst besta í heimi, bendi til þess að Íslendingar hafi talað heilbrigðiskerfið niður og gleymt því hvað það sé gott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×