Enski boltinn

Wenger: Framtíðin skýrist betur um miðja næstu viku

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wenger hefur gert Arsenal sjö sinnum að bikarmeisturum.
Wenger hefur gert Arsenal sjö sinnum að bikarmeisturum. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri nýkrýndra bikarmeistara Arsenal, segir að það komi í ljós um miðja næstu viku hvort hann verður áfram við stjórnvölinn hjá félaginu.

„Það er stjórnarfundur á þriðjudaginn. Þetta skýrist betur á miðviku- eða fimmtudaginn,“ sagði Wenger eftir bikarúrslitaleikinn í dag þar sem Arsenal bar sigurorð af Chelsea, 2-1.

Wenger, sem hefur gert Arsenal sjö sinnum að bikarmeisturum, var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í dag.

„Þetta var framúrskarandi frammistaða frá fyrstu mínútu. Liðið hefur þurft að þola mótlæti en staðið saman og svarað fyrir sig. Leikmennirnir sýndu styrk og samheldni og spiluðu frábæran fótbolta í dag,“ sagði Wenger.

„Ég er stoltur að hafa unnið þessa sjö bikarmeistaratitla. Ég er stoltur að hafa farið ósigraður í gegnum tímabil og hafa unnið bikartitlana.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×