Innlent

Hátt í 700 tilkynningar um kynferðisofbeldi gegn börnum á netinu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Samtökin Barnaheill fengu á síðasta ári hátt í sjö hundruð tilkynningar um börn sem eru beitt kynferðislegu ofbeldi á netinu. Tilkynningum hefur fækkað um allt að helming á milli ára.

Barnaheill hefur frá árinu 2001 tekið þátt í alþjóðlegu verkefni um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi á netinu. Sérstaka ábendingalínu, sem starfrækt er í samstarfi við ríkislögreglustjóra, er að finna á vefsíðu samtakanna, en þar er hægt að senda inn nafnlausar ábendingar um ólöglegt eða óviðeigandi efni á netinu, mansal á börnum, klámefni sem er aðgengilegt börnum og fleira.

Alls bárust 649 tilkynningar í gegnum ábendingalínuna á síðasta ári, og þar af leiddu sex þeirra til frekari rannsóknar lögreglu. Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur og verkefnastjóri hjá Barnaheillum, segir tilkynningarnar talsvert færri en áður.

 

„Það getur verið vegna þess að innan samfélagsmiðlanna eru tilkynningakerfi og folk notar þau kerfi örugglega í auknum mæli. Svo er kannski umræðan of hljóðlát undanfarin misseri. Það er full ástæða til að vekja aftur athygli á dreifingu myndefnis á netinu,” segir Þóra. Dreifing myndefnis geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.

„Nú er auðvitað uppi gríðarlega hávær umræða um það sem kallast sexting sem getur leitt það af sér að fólk verður fyrir kúgun eða hótunum ef það deilir ekki myndum af sér. Ef einu sinni er komin mynd á netið sem inniheldur nekt eða einhvers konar ofbeldi gegn barni er hægt að nýta þá mynd í þeim tilgangi að fá meira, að kalla eftir meiru," segir hún, og hvetur fólk jafnframt til þess að kynna sér ábendingalínu Barnaheilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×