Golf

Erfiður dagur hjá Ólafíu Þórunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn lék á þremur höggum yfir pari í dag.
Ólafía Þórunn lék á þremur höggum yfir pari í dag. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fann sig ekki á þriðja degi LPGA Volvik meistaramótsins í golfi sem fer fram á Ann Arbor vellinum í Detroit.

Ólafía spilaði vel fyrstu tvo dagana og sú spilamennska skilaði henni í gegnum niðurskurðinn. Hún var á fjórum höggum undir pari eftir fyrstu tvo dagana.

Ólafía lék á þremur höggum yfir pari í dag. Hún fékk tvo skolla á fyrri níu holunum og var komin með fjóra slíka eftir 15 holur.

Á síðustu þremur holunum fékk Ólafía tvö pör og einn fugl og rétt sinn hlut. Hún er núna á einu höggi undir pari.

Ólafía er í 70.-73. sæti fyrir lokadaginn á Volvik meistaramótinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×