Íslenski boltinn

Teigurinn kíkti á æfingu hjá bæði KR og FH fyrir stórleik kvöldsins | Hasar í kvöld?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR tekur á móti FH í kvöld í stórleik fimmtu umferðar Pepsi-deildar karla og leikurinn var að sjálfsögðu í aðalhlutverki í þætti Guðmundar Benediktssonar á föstudagskvöldið.

Teigurinn  kíkti á æfingu hjá bæði KR og FH og ræddi við reynsluboltana Indriða Sigurðsson hjá KR og Atla Viðar Björnsson hjá FH.

Leikur KR og FH hefst klukkan 20.00 á KR-vellinum og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

„Ég sé bara hörku leik hjá tveimur góðum liðum sem eru að komast í gírinn og hrökkva í gang,“ sagði KR-ingurinn Indriði Sigurðsson.

„Við erum að spila nýtt kerfi eða erum búnir að vera að spila það í allan vetur. Það er svo sem ekkert nýtt fyrir okkur. FH líka. Á meðan hin liðin, eins og Stjarnan og Valur, eru að keyra á hlut sem þau eru búnir að þekkja síðustu ár. Ég held að það sé eðlilegt að það taki smá tíma fyrir okkur að hrökkva í gang. Það mega ekki vera mikið fleiri leikir áður en við hrökkvum í gang því þá erum við farnir að missa af lestinni,“ sagði Indriði.

„Þessi leikir eru virkilega skemmtilegir yfirleitt. Það er undantekningarlaust góð stemmning þegar þessi lið mætast og oft mikill hasar,“ sagði FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson.  

„Það er ekki gott ef við lendum svona langt á eftir en það er bara maí og þá að við vinnum ekki á sunnudaginn þá er ekki himinn og jörð að farast. Þó að við vissulega viljum vinna og gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að fara að taka inn einhver stig þá megum ekki spennan bogann það hátt að það sé allt búið ef leikurinn á móti KR vinnst ekki,“ sagði Atli Viðar.

Það má sjá meira af viðtölunum við þessa tvo reynslubolta sem og spá þeirra Bjarna Guðjónssonar og Arnars Guðjónssonar um úrslit leiks KR og FH í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×