Körfubolti

Besti ungi leikmaður 1. deildarinnar til Vals

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásta Júlía og Darri Freyr Atlason, þjálfari Vals, handsala samninginn.
Ásta Júlía og Darri Freyr Atlason, þjálfari Vals, handsala samninginn. mynd/valur
Ásta Júlía Grímsdóttir skrifaði í dag undir samning við körfuknattleiksdeild Vals um að leika með félaginu næstu tvö keppnistímabil.

Ásta Júlía, sem er fædd árið 2001, var valin besti ungi leikmaður 1. deildar á lokahófi KKÍ á dögunum. Hún hefur leikið með KR frá því að hún hóf að æfa körfubolta, var valin í U-15 í fyrra og U-16 landsiðið núna í sumar.

Ásta Júlía spilaði að meðaltali 23 mínútur með KR í 1. deildinni í vetur og skoraði 9,9 stig, tók 8,6 fráköst og var með 2,1 varið skot í leik.

 

Darra Frey Atlasyni, nýjum þjálfara Vals, líst vel á að fá Ástu Júlíu í hópinn.

„Ásta Júlía er með efnilegustu leikmönnum landsins og við erum mjög spennt fyrir hennar  framtíð á Hlíðarenda. Hún hefur alla burði til þess að ná eins langt og hún vill og við munum hjálpa henni af fremsta megni á leiðinni,“ er haft eftir Darra í fréttatilkynningu frá Val.

Ásta Júlía segist spennt að spreyta sig í Dominio‘s-deilinni næsta vetur.

„Ég er mjög spennt að spreyta mig í úrvalsdeildinni. Mér líst vel á hópinn og félagið. Darri var fyrsti þjálfarinn minn þegar ég kom upp í meistaraflokk þannig að það verður frábært að leika undir hans stjórn aftur,“ sagði Ásta Júlía.

Valur komst ekki í úrslitakeppnina í vetur en ætlar sér stærri hluti á næsta tímabili. Auk Ástu Júlíu er Valur búinn að semja við Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur um að leika með liðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×