Erlent

Ný handtaka í Manchester

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögregla girti af götur í Moss Side í Manchester í dag.
Lögregla girti af götur í Moss Side í Manchester í dag. Vísir/AFP
Vopnaðir lögregluþjónar gerðu áhlaup á íbúðarhús í Moss Side í Manchester í dag. Vitni á staðnum segjast hafa heyrt öskur og sprengingu á vettvangi. Þá var 25 ára gamall maður handtekinn í Old Trafford, svæði suðvestan við miðborg Manchester, í dag. Rannsókn lögreglu á árásinni í Manchester síðastliðið mánudagskvöld stendur nú sem hæst.

Götum í grennd við Quantock Close og Selworth Road í Moss Side í Manchester var lokað er lögregla athafnaði sig á svæðinu nú laust eftir hádegi að staðartíma.

Stephen Cawley, íbúi við eina af þeim götum sem lögregla gerði áhlaup á í dag, segir tvo bræður, 15 og 19 ára, af líbískum uppruna hafa verið leidda á brott af lögreglu. Lögregla hafði einnig afskipti af þriðja bróðurnum en honum var sleppt.

Þá var 25 ára gamall maður handtekinn í Old Trafford, suðvestan við miðborg Manchester, í tengslum við árásina. Hann er grunaður um hryðjuverkatengd brot. Samtals hafa fjórtán nú verið handteknir en nú eru tólf í haldi lögreglu.

Enn er talið að meðlimir í hryðjuverkaneti, sem talið er hafa skipulagt árásina á Manchester á mánudagskvöldið, gangi lausir í Bretlandi. 


Tengdar fréttir

Árásin í Manchester: Tveir ungir menn handteknir

Tveir karlmenn voru handteknir í nótt í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Alls eru ellefu einstaklingar í haldi lögreglu vegna árásarinnar

Viðbúnaðarstig lækkað í Bretlandi

Viðbúnaðarstig í Bretlandi hefur verið lækkað að nýju eftir að hafa verið sett á hæsta stig í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þetta í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×